• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Skóli margbreytileikans

 Nemendahópur í grunnskóla er fjölbreyttur og þarfir nemenda margvíslegar. Í Álftamýrarskóla er leitast við að framfylgja skólastefnunni ,,skóli margbreytileikans" í samræmi við lög um grunnskóla nr. 91/2008 og drög að nýrri aðalnámskrá fyrir grunnskóla frá 2011.

Meginleiðarljós skólastefnunnar er jöfn tækifæri til náms, óháð atgervi og aðstæðum hvers og eins barns. Almennur grunnskóli á að vera fær um að koma til móts við sérstakar þarfir nemanda hvort sem þær eru náms- eða félagslegar og bjóða upp á góða menntun fyrir alla.

Lesa meira...
 
Markmið námsvers

Mynd úr gallery ÁlftNámsver er regnhlífarhugtak sem nær yfir öll þau úrræði og alla þá þjónustu sem Álftamýrarskóli býr yfir til að að koma á móts við þá nemendur sem á einhvern hátt eiga í erfiðleikum með að stunda skólagönguna á sömu forsendum og meginþorri nemendahópsins.

Úrræði námsvers ná til nemenda úr öllum árgöngum skólans og teygja sig inn í allt skólastarfið hvort sem litið er til einstakra námsgreina  eða húsnæðis og skólalóðar. Þeim er ætlað að tryggja börnum með hvers kyns sérstakar þarfir hvað varðar skólagöngu, nám og/eða félagslega þátttöku sem besta þjónustu og gera almenna kennslu, sérkennslu og stuðning markvissari.

Lesa meira...
 
Stuðningsúrræði/sérúrræði

Úrræði námsvers eru hugsuð til að bæta félagslega og/eða námslega stöðu nemenda og stuðla þannig að  bættri sjálfsmynd og líðan nemenda. Þau geta m.a. falist í aðlögun námsefnis, athvarfi, stuðningi inni í bekk og utan bekkjar, sérkennslu innan bekkjar og utan eða aðlögun stundaskrár.

Ef ekki hafa fundist leiðir til að mæta sérstökum þörfum nemanda inni í almennu bekkjarstarfi í samvinnu umsjónarkennara, nemanda og foreldra hans er hægt að vísa málinu til nemendaverndarráðs og  óska eftir ráðgjöf og stuðningi starfsmanna námsvers.

Lesa meira...
 
Starfsemi námsvers

Við námsverið starfa deildarstjóri, sérkennarar, þroskaþjálfi, náms- og starfsráðgjafi, stuðningsfulltrúar og sérgreinakennarar.

Lesa meira...